Útflutningsfyrirtækin Bacco ehf. og Seaproducts Iceland ehf. munu sameinast um áramótin, en bæði fyrirtækin hafa flutt út saltaðar og frosnar fiskafurðir á erlenda markaði. Vísir greinir frá þessu.

Sameiginleg velta félaganna á ársgrundvelli er um fimm milljarðar króna. Hið sameinaða fyrirtæki mun heita Bacco Seaproducts ehf. og verður til húsa í Hafnarfirði.