Um 533 þúsund manns var sagt upp í Bandaríkjunum í nóvember og hefur jafn mörgum ekki verið sagt upp á einum mánuði í 34 ár, eða frá því í desember árið 1974 samkvæmt tölum frá bandaríska vinnumálaráðuneytinu.

Þá mældist atvinnuleysi í Bandaríkjunum 6,7% í nóvember en var 6,5% í október.

Að sögn Bloomberg fréttaveitunnar er gert ráð fyrir enn fleiri uppsögnum nú í desember og jafnvel einnig í janúar.