Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson og Birgitta Jónsdóttir, þingmenn Pírata, ætla að leggja fram frumvarp um afnám refsinga við guðlasti þegar þing kemur aftur saman eftir jólafrí.

Frumvarpið felur í sér að 125. gr. almennra hegningarlaga verði felld úr lögunum. Greinin er svohljóðandi:

„Hver, sem opinberlega dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags, sem er hér á landi, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 3 mánuðum. Mál skal ekki höfða, nema að fyrirlagi saksóknara.“

Í greinargerð með frumvarpinu segir meðal annars að fólk hafi ólíka sýn á lífið og því sé viðbúið að tjáning sem einn telji eðlilega telji annar móðgandi. Sem betur fer séu upplifanir fólks af lífinu og tilverunni ólíkar, og þess vegna sé óraunhæft að ætla mannlegum hugsunum, tilfinningum og skoðunum að rúmast innan ramma kurteisinnar.

Einnig er árásin á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í París gerð að umtalsefni í greinargerðinni.

„Slíkar árásir á fólk vegna tjáningar eru því miður ekki nýlunda. Það er hins vegar ábyrgðarhluti lýðræðissamfélaga að svara slíkum árásum með þeim skýru skilaboðum að tjáningarfrelsið muni aldrei lúta fyrir manndrápum, ofbeldi eða hótunum. Meðal annars af þeirri ástæðu leggja flutningsmenn frumvarpsins til að Ísland leggi sitt af mörkum við að koma þeim skilaboðum á framfæri með því að gera frumvarp þetta að lögum.“