BG Capital hefur keypt í FL Group fyrir um 3,28 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. BG Capital er í eigu Baugs Group. Um er að ræða 111.346.178 hluti, á genginu 29,5 krónur á hlut.

Eignarhlutur Baugs Group í FL Group er vistaður bæði í BG Capital og Baugi Group. Í heild eiga félögin 19,55% eignarhlut í FL Group eða 1.553.281.023 hluti.

FL Group hefur lækkað um 3,64%, það sem af er degi og er gengi félagsins 29,1 krónur á hlut.