Bjarni Pálsson, deildarstjóri virkjunardeildar á þróunarsviði Landsvirkunar, var í gær kjörinn formaður Jarðhitafélags Íslands. Aðalfundur félagsins var haldinn þann 17. apríl síðastliðinn.

Bjarni hefur setið í stjórn félagsins sl. fjögur ár, þar af síðustu tvö árin sem varaformaður. Þá hefur hann setið undanfarin tvö ár í stjórn IGA, Alþjóða jarðhitasambandsins. Bjarni tekur við af Jakobi S. Friðrikssyni hjá Orkuveitu Reykjavíkur sem verið hefur formaður síðustu tvö ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jarðhitafélaginu. Þar segir jafnframt að þau Kristín Vala Matthíasdóttir efnaverkfræðingur hjá HS Orku og Magnús Þór Jónsson prófessor í véla- og iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands hafi verið kjörin ný í stjórn félagsins.