Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað Björgólf Guðmundsson gjaldþrota. Úrskurðurinn var kveðinn upp í morgun.

Þetta hefur Viðskiptablaðið fengið staðfest frá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, vildi ekki tjá sig um þetta við blaðamann þegar leitað var eftir því rétt í þessu. Hann sagði að tilkynning væri á leiðinni.

Eftir því sem næst verður komist nemur gjaldþrotið tugum milljarða króna.