Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur boðist boðist til að standa straum af kostnaði sem kann að hljótast af því að bjarga ísbirninum sem gekk á land í Skagafirði í dag.

Þetta er að höfðu samráði við stjórnvöld og miða aðgerðirnar að því koma ísbirninum í öruggt og varanlegt umhverfi.

„Novator lítur á björgun ísbjarnarins sem framlag til náttúruverndar þar sem um er að ræða alfriðað dýr," segir í fréttatilkynningu.