Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra hefur ráðið Björn Zoëga, forstjóra Karolinska sjúkrahússins í Svíþjóð, sem ráðgjafa í tímabundið hlutastarf meðfram störfum sínum sem forstjóri. Björn hefur þegar hafið störf, samkvæmt tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins.

Fram kemur að meðal þess sem liggur til grundvallar þeirri vinnu sem er framundan eru áherslur í heilbrigðismálum í nýjum stjórnarsáttmála, innleiðing þjónustutengdrar fjármögnunar og greiningarvinna sem gerð hefur verið á framtíðarþjónustu Landspítala.

„Ljóst er að Landspítalinn er hryggjarstykkið í okkar heilbrigðiskerfi. Spítalinn verður að geta sinnt sínu mikilvæga hlutverki nú og í framtíðinni. Þá er gott samspil spítalans við aðra þætti heilbrigðiskerfisins lykilatriði. Umtalsverðar breytingar á rekstri og yfirstjórn Landspítalans munu eiga sér stað á næstunni og því er gríðarlega mikilvægt að sérfróðir aðilar með þekkingu á rekstri slíkrar stofnunar séu til að veita ráð við slíka vinnu,“ segir Willum Þór í tilkynningunni.

Björn starfaði sem forstjóri Landspítalans á árunum 2010 til 2013 og hafði þar áður leyst stöðuna tímabundið af frá apríl til október 2008. Hann var ráðinn forstjóri Karolinska sjúkrahússins árið 2019 og hefur frá þeim tíma náð að snúa við miklum hallarekstri, meðal annars með því að leggja niður skrifstofustörf, en fjölgaði á sama tíma gjörgæslurýmum um fimmfalt og sjúkrarúmum um fjórðung.

„Velferð Landspítalans er og verður ætíð mitt hjartans mál. Það eru fjölmörg tækifæri til að styðja við og styrkja stofnunina og starfsfólkið. Ég er því þakklátur og ánægður að fá tækifæri til að leggja mitt af mörkum, og aðstoða nýjan ráðherra í þessu mikilvæga verkefni,“ segir Björn Zoëga .