Gengi hlutabréfa Haga hækkaði um 2,86% í Kauphöllinni í dag í rúmlega 230 milljóna króna. Veltan með bréf Haga var nærri því öll veltan á markaðnum í dag. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Icelandair Group um 0,78% og stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,48%.

Einu hlutabréfin sem lækkuðu í verði voru bréf Marel, en gengi þeirra lækkaði um 0,33%.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,13% í 234 milljóna króna veltu. Vísitalan endaði í 1.041,69 stigum í lok dags.