Breska fjármálaeftirlitið (FSA) hefur veitt Straumi-Burðarási Fjárfestingabanka hf. leyfi til að starfrækja útibú í London og hófst starfsemin þann 1. janúar 2007, segir í tilkynningu.

Starfsemi útibúsins mun í fyrstu snúa að útlánastarfsemi, einkum í formi sambankalána þar sem Straumur-Burðarás er ýmist þátttakandi eða leiðandi lánveitandi.