Lífeyriskerfið gæti tekið stakkaskiptum verði hugmyndir nefndar sem fer nú yfir kerfið að veruleika. Þetta kemur fram í umfjöllun fréttastofu Ríkisútvarpsins. Á vef Samtaka atvinnulífsins segir jafnframt að í ársskýrslu SA 2011-2012 er fjallað um verkefni nefndarinnar. Í ársbyrjun 2010 var skipuð nefnd aðila almenna og opinbera vinnumarkaðarins og stjórnvalda sem fékk það verkefni samkvæmt erindisbréfi fjármálaráðherra að fara yfir kosti og galla núverandi fyrirkomulags og safna saman hugmyndum og koma með tillögur um framtíðarskipan lífeyrismála.

Nefndin hittist reglulega árið 2010 en starf hennar lá að mestu niðri árið 2011, vegna ósættis milli fulltrúa almenna markaðarins og heildarsamtaka opinberra starfsmanna, en var tekið upp á ný í febrúar á þessu ári. Í hnotskurn snérist ágreiningurinn um það hvað fælist í áunnum lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna, en ASÍ og SA hafa lagt áherslu á að skuldaaukning lífeyrissjóða opinberra starfsmanna verði stöðvuð með því að inngreiðslum í A- og B-deildir LSR og sveitarfélaga verði hætt og iðgjöld greiðist í nýja deild sem verði rekin á sambærilegum grunni og á almennum vinnumarkaði. Þeir sem hafi greitt í sjóðina haldi þeim réttindum. Samstaða hefur verið um að núverandi tvískipting milli almenna og opinbera vinnumarkaðarins sé skaðleg.