Starfsfólki Brims var tilkynnt á fundi fyrr í dag að fyrirtækið muni standa við gerða samninga og því munu taxtar hækka hjá starfsfólki þess um kr. 13.500 frá 1. mars sl.

Aðspurður sagði Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Brims Akureyri, að Brim hefði ákveðið að nýta sér ekki þá frestun sem búið var að samþykkja. „Við höfum ávallt leitast við að standa við alla þá samninga sem við erum aðilar að og því hækkum við taxtana frá og með 1. mars um 13.500 krónur,” segir Ágúst í frétt á heimasíðu verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju.

Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, fagnar þessu og segist vita að fleiri aðilar í Eyjafirði séu að hugsa slíkt hið sama.