Á síðasta ári fluttust 1.404 fleiri frá landinu en til þess en það dró úr brottflutningi miðað við árið áður, þegar 2.134 fluttust úr landi umfram aðflutta. Alls fluttust 6.982 frá landinu, samanborið við 7.759 á árinu 2010. Alls fluttust 5.578 manns til Íslands árið 2011, sem er svipaður fjöldi og árið 2010 þegar 5.625 manns fluttu til landsins. Íslenskir ríkisborgarar voru mun fleiri en erlendir í hópi brottfluttra, eða 4.135 á móti 2.847. Þetta kemur fram hjá Hagstofu Íslands.

Íslenskir ríkisborgarar voru einnig fleiri meðal aðfluttra en erlendir, 2.824 á móti 2.754. Alls fluttust því 1.311 íslenskir ríkisborgarar úr landi umfram brottflutta, en 93 erlendir ríkisborgarar.

Árið 2004 hófust tímar mikilla búferlaflutninga til og frá landinu sem standa enn. Fyrstu fimm árin, 2004-2008, fluttist 15.921 einstaklingur til Íslands umfram brottflutta.

Á vef Hagstofu Íslands kemur fram að undanfarin þrjú ár (2009-2011) hafa dæmið snúist við og héðan hafa alls 8.373 einstaklingar flust til útlanda umfram aðflutta. Á þessum átta árum hafa því flust 6.918 manns til landsins umfram brottflutta. Noregur tekur við flestum íslenskum ríkisborgurum Árið 2011 fluttust 3.022 íslenskir ríkisborgarar til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar af 4.135 alls. Flestir fluttust til Noregs, eða 1.508. Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu einnig frá þessum löndum eða 2.113 af 2.824 alls, flestir þó frá Danmörku, eða 1.206. Á sama tíma fluttust flestir erlendir ríkisborgarar til Póllands, eða 1.000 af 2.847 alls. Þaðan komu líka 768 erlendir ríkisborgarar. Þetta flutningsmynstur hefur haldist óbreytt frá því 2009, nema hvað Noregur hefur orðið hlutfallslega vinsælli meðal íslenskra ríkisborgara og dregið hefur úr vægi Póllands sem helsta áfangastaðar erlendra ríkisborgara. Tíðasti aldur brottfluttra var 24 ár Árið 2011 voru flestir brottfluttra á aldrinum 25–29 ára, flestir þó 24 ára af einstaka árgöngum. Fjölmennasti hópur aðfluttra var á aldrinum 20–24 ára. Tíðasti aldur aðfluttra einstaklinga var 23 ára. Þegar tekið er tillit til fjölda brottfluttra umfram aðflutta var mest fækkun vegna fólksflutninga frá landinu í aldurshópnum 30–34 ára.