Búseti húsnæðissamvinnufélag hefur náð samkomulagi við Fasteignafélagið Reginn hf. sem er í eigu Landsbankans um kaup Búseta á svokölluðum Einholtsreit, sem eru lóðir og fasteignir að Þverholti 15 – 21 og Háteigsvegi 7. Í tilkynningu kemur fram að félagið áformar byggingu íbúðarhúsnæðis á reitnum sem verði seldar í formi búseturéttar sem feli í sér öruggt húsnæði, sem sé nokkurs konar millistig á milli hefðbundinna fasteignakaupa og leigumarkaðar.

„Ef fjármögnun og framkvæmdir ganga samkvæmt áætlun munu fyrstu íbúarnir flytja inn árið 2014. Nú hefst mótun skipulags í samvinnu við íbúa í nágrenninu og skipulagsyfirvöld í Reykjavík. Áætlanir Búseta gera ráð fyrir mun minna byggingamagni og nýtingarhlutfalli heldur en fyrra skipulag gerði ráð fyrir. Búseti leggur áherslu á að vinna að nýju deiluskipulagi fari fram í góðri sátt við íbúasamtök . Nýbyggingarnar taki mið af aðliggjandi umhverfi og yfirbragði hverfanna í kring. Ljóst er að margir verða fegnir því að óvissa um framtíð reitsins sé á enda og að hófleg uppbygging komi þar sem verið hefur afgirt ófrágengið framkvæmdasvæði. Félagar í Búseta koma úr öllum stéttum samfélagsins, fjölskyldur í bland við einstaklinga og sýnir nýleg könnun að 94% íbúa í Búseta eru ánægðir og mæla með þessu formi," segir í tilkynningunni,

„Búseti er ekki rekinn í hagnaðarskyni heldur er samvinnufélag í eigu félagsmanna hverju sinni. Félagið á yfir 700 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Áform Búseta eru uppbygging og rekstur íbúða af fjölbreyttum stærðum og gerðum á Einholtsreitnum. Horft er til langs tíma við uppbygginguna sem verði í samvinnu og samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar og vonast er til að hún verði lyftistöng fyrir hverfið í heild sinni. Reiturinn var boðinn út í október 2011 og annaðist verkfræðistofan VSÓ útboðið fyrir Reginn hf. Við opnun tilboða var ljóst að áhugi á reitnum var mikill og bárust 9 samstarfstilboð og 3 kauptilboð. Að lokinni yfirferð tilboða og fundum Regins með hæstbjóðendum var ljóst að kauptilboð Búseta var hagstæðast. Því var ákveðið að ganga til viðræðna við Búseta og hafa samningaviðræður staðið yfir frá því í nóvember. Verðmæti samningsins nemur um 550 milljónum króna."