Byr sparisjóður og erlendir lánveitendur sjóðsins hafa gert með sér samkomulag vegna lánasamninga sem kveða á um lágmarks eiginfjárhlutfall umfram það sem fram kemur í lögum um fjármálafyrirtæki að því er kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum.  Samkomulagið kveður á um að tímabundið sé fallið frá eiginfjárkröfum umfram lögbundið hlutfall.  Allir lánveitendur samþykktu samkomulagið samhljóða.

Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri segir í tilkynningu að þetta samkomulag hafa mikla þýðingu fyrir Byr sparisjóð þar sem það tryggi að erlendir kröfuhafar gefa sjóðnum svigrúm til að vinna sig út úr fjármálakreppunni.  Ragnar segir að í ljósi þeirra erfiðu aðstæðna sem uppi eru á fjármálamörkuðum heimsins sé þetta samkomulag Byrs og erlendu lánadrottnanna mikill sigur fyrir sparisjóðinn.