Citigroup mælir með kaupum í Kaupþingi og verðmetur félagið á eitt þúsund krónur á hlut, segir í nótu frá bankanum, sem er að meta bankann í fyrsta sinn.

Bankinn segir vaxtamöguleika Kaupþings mikla og telur það kost að stjórnendur bankans eru frumkvöðlar og eigi stóra eignarhluti í bankanum.