Bankastjórn Seðlabanka Íslands segir að ákvörðun bankans um að hækka stýrirvexti um 75 punkta í 12,25% sé tekin í ljósi þess að verðbólguhorfur, bæði til lengri og skemmri tíma, hafa versnað mjög að óbreyttum stýrivöxtum.

Davíð Oddson, seðlabankastjóri, sagði að hlutverk bankans væri að ná tökum á verðbólgunni og að verulegs aðhalds í peningamálum megi vænta á næstunni þar sem ekki liggi fyrir hvort að hægi á útlánum bankanna og að húsnæðismarkaður kólni.

Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að framvinda efnahagsmála frá marslokum bendi til þess að umtalsverða hækkun stýrivaxta þurfi til að peningastefnan veiti nægilegt aðhald. Auknar verðbólguvæntingar hafa leitt til lækkunar raunstýrivaxta. Að auki dregur lægra gengi krónunnar úr aðhaldi í samkeppnisgreinum.

?Vaxtahækkun Seðlabankans nú er ætlað að bregðast við þessum aðstæðum. Staðfastur ásetningur bankastjórnar Seðlabankans er að ná verðbólgumarkmiðinu innan ásættanlegs tíma," segir bankinn.

Seðlabankinn segir að gengi krónunnar hefur lækkað umtalsvert frá fyrri verðbólguspá bankans, sem birt var þann 30. mars síðastliðinn, og að verðbólga hafi aukist og verðbólguhorfur því versnað enn frekar.

?Mikill halli á utanríkisviðskiptum á fyrsta fjórðungi ársins bendir til þess að krónan geti orðið undir þrýstingi á næstu mánuðum. Til þess að vinna á móti áhrifum þessa á verðbólgu er nauðsynlegt að peningastefnan verði afar aðhaldssöm á næstunni," segir Seðlabankinn.

Bankinn segir að flestir hagvísar benda til þess að eftirspurn hafi enn vaxið ört það sem af er árinu. Innflutningur neysluvöru og veltutölur benda til þess að einkaneysla hafi vaxið hratt. Enn sjást ekki merki þess að hægt hafi á vexti útlána banka og sparisjóða. Þrátt fyrir fréttir um minnkandi umsvif og einstök dæmi um verðlækkun fasteigna eru enn ekki skýrar vísbendingar um að íbúðamarkaðurinn sé farinn að kólna.

Atvinnuleysi heldur áfram að minnka og atvinna jókst hraðar á fyrsta fjórðungi ársins en áður hefur sést í vinnumarkaðskönnunum. Ásamt versnandi verðbólguhorfum eykur það hættu á að launaþróun fari úr böndunum.