Delta Air Lines hefur hafið flug milli Íslands og New York allan ársins hring, fyrst allra bandarískra flugfélaga. Vetraráætlun félagsins hefur tekið í gildi og verður því flogið fjórum sinnum í viku milli Keflavíkurflugvallar og JFK flugvallar í New York. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Flogið verður á Boeing 757-200 þotum Delta í vetur fram til 1. maí, en þá tekur við sumaráætlun félagsins með daglegu flugi á stærri 234 sæta Boeing 757-300 þotum. Yfir hásumarið verða tvær brottfarir á sunnudögum til New York.

Ferðamenn frá Norður-Ameríku til Íslands eru orðnir fleiri á þessu ári en allir Íslendingar. Í lok október var fjöldi þeirra kominn í 434 þúsund. Þar af voru Bandaríkjamenn 360 þúsund og Kanadamenn 74 þúsund.,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Dwight James, framkvæmdastjóri Atlantshafsflugs Delta Air Lines að lykillinn að þessum árangri er hið víðfeðma leiðanet þeirra um alla Norður-Ameríku, sem gerir viðskiptavinum kleift að komast til og frá Íslandi með aðeins einni viðkomu í New York.