Þann 11. nóvember næstkomandi mun Félag viðskiptafræðinga- og hagfræðinga (FVH) standa fyrir hádegisverðarfundi á Grand hóteli um eignarhald lífeyrissjóða í íslensku atvinnulífi.

Á fundinum verður leitast við að svara spurningum á borð við hvort áhrif þeirra séu of mikil á litlum markaði og hvað sé til ráða. Hersir Sigurgeirsson, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands mun fjalla um eignarhald á íslenskum hlutabréfamarkaði. Þá mun Helgi Magnússon flytja erindi undir yfirskriftinni „Eiga lífeyrissjóðirnir of mikið af atvinnulífinu á Íslandi?“.

Þátttakendur í pallborðsumræðum verða Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, fjárfestir, og Magnús Halldórsson, blaðamaður á Kjarnanum. Fundarstjóri verður Edda Hermannsdóttir, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins og stjórnarkona í FVH

Fundurinn verður haldinn á Grand hóteli frá kl. 12 - 13:15 og er öllum opinn. Skráning fer fram á heimasíðu FVH .