Eignaverðsvísitala KB banka hækkaði um 2,1% að raunvirði í ágúst sem þýðir að eignir landsmanna jukust að meðaltali um 2,1% í ágúst. Mestar voru hækkanir á hlutabréfaverði eða 9%. Hins vegar var lækkun á vísitölu fasteignaverðs um 1,3% sem dró úr áhrifum hækkandi hlutabréfaverðs. Síðastliðna 12 mánuði hefur eignaverð hækkað um rúmlega 20%. Eignamyndun hefur aldrei verið jafn hröð og verið hefur að undanförnu en hraði eignaverðs hækkana hefur verið um og yfir 20% frá síðastliðnu hausti. Mestar hækkanir voru í apríl er eignaverð hækkaði um 25% frá sama tíma árið áður.

Að öllum líkindum mun sá mikli hraði sem verið hefur á hækkun eignaverðs halda áfram en miklar hækkanir hafa verið á hlutbréfa og skuldabréfamarkaði í september. Líklegt er einnig að hækkanir á fasteignaverði muni halda áfram á næstu mánuðum í kjölfar nýju fasteignalánanna eins og kemur fram í Hálffimm fréttum KB banka.

Hækkandi hlutabréfaverð, lægri vextir og hækkandi fasteignaverð hefur komið fram í miklum vexti fjárfestingar og einkaneyslu að undanförnu og ber vöruskiptahallinn þess sterk merki en mikill innflutningur fjárfestingarvara, fólksbifreiða og aðfanga til húsbygginga hefur öðru fremur verið orsakavaldur mikils vöruskiptahalla.