Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu 1.304 milljörðum króna í lok ágúst og lækkuðu um 5,8 milljarða í mánuðinum. Útlán og eignarleigusamningar námu 1.129,8 milljörðum króna í lok mánaðarins og lækkuðu um 12 milljarða frá fyrra mánuði.

Þetta kemur fram í Hagtölum Seðlabankans en innistæður í bankanum lækkuðu um 3,8 milljarða króna milli mánaða, fóru úr 17,8 milljörðum í 14 milljarða en kröfur á lánastofnanir hækkuðu um 12,9 milljarða.

Eigið fé nam 79,3 milljörðum króna í lok ágúst og hækkaði um 4,6 milljarða milli mánaða.