Hrein eign lífeyrissjóða í lok ágúst sl. var 1.827,6 milljarðar króna og lækkaði hún um 6,6 milljarða í mánuðinum.

Lækkunina má helst rekja til breytinga á erlendum liðum eftir því sem fram kemur í hagtölum Seðlabankans.

Erlend verðbréfaeign lækkaði um 10,6 milljarða eða um 2,1 % frá fyrri mánuði. Sé miðað við ágúst 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóða hækkað um 129,3 milljarða króna.

Í hagtölum Seðlabankans er þó tekið fram að enn sé nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóðanna.