Einar Þorsteinsson forstjóri Íslandspósts hefur með bréfi til stjórnar sagt upp störfum. Stjórnin samþykkir uppsögnina og lætur Einar af störfum í dag. Önnu Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs og Andrési Magnússyni, starfsmannastjóra hefur verið falið að sinna störfum forstjóra þar til nýr forstjóri tekur til starfa segir í tilkynningu frá félaginu.

Þar kemur einnig fram að stjórnin þakkar Einari vel unnin störf í þágu fyrirtækisins og óskar honum velfarnaðar.