Ölgerðin Einstök hagnaðist um 128 þúsund krónur árið 2015. Hagnaður fyrirtækisins dregst því saman milli ára, en árið 2014 græddi Einstök tæplega 3,7 milljónir.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði nam 103 þúsund samanborið við 4,2 milljónir árið 2014.

Eigið fé ölgerðarinnar nam rúmum 5,4 milljónum í lok árs 2015 og hélst því nokkuð stöðugt milli ára. Í lok árs 2014 var það 5,3 milljónir.

Skammtímaskuldir fyrirtækisins námu 4,8 milljónir í lok árs 2015 og lækka því frá lok árs 2014, þegar þær námu rúmri 5,1 milljón.

Handbært fé í árslok 2015 nam 1,3 milljón sem er lægra en í árslok 2014, þegar það nam tæpri 1,8 milljón.