Orri Hauksson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Símans segir að ekkert sé hæft í þeim orðrómi að 365 séu að kaupa Skjá einn af Símanum. Meðal annars var greint frá þessum orðrómi á vef Steingríms Ólafssonar í dag en jafnframt tekið fram að honum væri neitað af forsvarsmönnum 365.

Í þessu sambandi má minna á að Brynjólfur Bjarnason forstjóri Símans sagði í viðtali við Viðskiptablaðið í síðustu viku að fyrirtækið teldi skynsamlegt að eiga aðgang að sjónvarpsefni til að dreifa. Ekki stæði því til að selja Skjá einn eða leggja stöðina niður.