Í ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem fram fór í Hörpu í í gær segir meðal annars að stóra verkefnið á Íslandi sé að skapa aðstæður sem uppfylli metnað fyrir góðu samfélagi og samkeppnishæfu samfélagi.

Nefna þeir meðal annars að skattkerfið verði einfaldað frekar, jaðarskattar lækkaðir og endurgreiðslur á virðisaukaskatti verði aftur færður upp í 100% vegna vinnu á byggingarstað, auk þess að kalla á stöðugleika í gjaldmiðlamálum og lækkun launatengdra gjalda ásamt fleiri atriðum.

Verja þurfi stöðu íslensk iðnaðar

Fyrr um daginn var Guðrún Hafsteinsdóttir, endurkjörin formaður samtakanna á aðalfundi félagsins fram að næsta iðnþingi árið 2018.

Segir í ályktuninni að efla þurfi og verja stöðu íslensk iðnaðar og atvinnulífs í bráð og lengd svo hægt sé að fjölga störfum, auka fjölbreytni svo atvinnulífið geti skapað gott líf fyrir fólk á öllum aldri í öllum landshlutum.

Jafnframt er lögð áhersla á að ungt og vel menntað fólk finni kröftum sínum farveg hér á landi til framtíðar og að Ísland verði þekkt fyrir að nýta þau tækifæri sem felist í tæknibreytingum, grænum lausnum og aukinni framleiðni á öllum sviðum.

Leggja samtökin áherslu á eftirfarandi 12 atriði til að varða leiðina að því marki:

  1. Nauðsynlegt er að koma í veg fyrir áfall í útflutningstekjum og vaxandi flótta fyrirtækja úr landi samfara hraðri styrkingu krónunnar. Lækka þarf vexti, afnema höft að fullu og treysta hagstjórn.
  2. Meiri stöðugleika þarf í gjaldmiðlamálum, meiri fyrirsjáanleika og minni vaxtamun. Það getur aðeins gerst með endurskoðun peningastefnunnar.
  3. Einfalda þarf skattkerfið frekar, lækka jaðarskatta og færa á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingarstað aftur upp í 100%. Það stuðlar að betri skattheimtu og dregur úr hættu á svartri atvinnustarfsemi og skattaundanskotum.
  4. Launatengd gjöld eru há og íþyngjandi fyrir fyrirtæki. Tryggingagjald þarf að lækka hratt til sama horfs og var 2008.
  5. Innviðafjárfestingar verður að setja í forgang og mæta þannig miklum uppsöfnuðum halla og brýnni þörf. Opna þarf á fjölbreyttari form fjármögnunar framkvæmda.
  6. Nauðsynlegt er að auka framboð lóða og skapa hvata til byggingar ódýrra íbúða í takt við þarfir fólks. Vegna ófremdarástands á húsnæðismarkaði fá stórir hópar fólks ekki húsnæði við hæfi.
  7. Menntun þarf að vera í betra samræmi við þarfir atvinnulífs og samfélags. Fjölga þarf verulega nemum í iðn- og verkgreinum og leggja þarf meiri áherslu á tækni- og forritunarnám í takt við tæknibreytingar.
  8. Parísarsamkomulagið um minnkun gróðurhúsalofttegunda er krefjandi áskorun. Markmiðin munu ekki nást nema í víðtækri sátt og samvinnu stjórnvalda og atvinnulífs. Ísland getur tekið forystu á ákveðnum sviðum grænnar tækni
  9. Auka þarf raforkuöryggi um land allt og samkeppni á raforkumarkaði og innleiða þarf markaðslausnir. Nauðsynlegt er að mæta betur fjölbreyttum raforkuþörfum millistórra raforkunotenda. Á sama tíma þarf að verja samkeppnishæfni orkunotenda á Íslandi.
  10. Umgjörð alþjóðlegrar starfsemi á Íslandi þarf að vera samkeppnishæf. Afnám hámarks á endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar og efling fjármögnunarumhverfis sprotafyrirtækja eru nauðsynlegur þáttur í því.
  11. Gagnatengingar við Evrópu og Bandaríkin eru lífæð nútíma samfélags og þekkingariðnaðar. Nýta verður tækifærin sem felast í stórbættum gagnatengingum með nýrri uppbyggingu. Tryggja þarf öryggi og gæði fjarskipta um land allt.
  12. Endurskoðun búvörusamninga og tollasamningar við aðrar þjóðir þurfa að fela í sér jafnræði atvinnugreina, stuðning við nýsköpun og aukna framleiðni í landbúnaði, ásamt því að verja sérstöðu íslensks landbúnaðar.