Hlutabréf í Evrópu hafa lækkað nokkuð það sem af er degi en síðustu dagar hafa verið rótsamir á hlutabréfamörkuðum. Á þriðjudag féllu hlutabréf töluvert strax við opnun og flestar vísitölur lækkuðu strax um rúmlega 2%. Eitthvað dró úr þeirri lækkun og hafði FTSEurofirst 300 vísitalan lækkað um 1,7% við lok markaða.

Í gær tóku hlutabréf við sér á ný og hækkuðu nokkuð en FTSE 300 vísitalan hækkaði þá um 1,4%.

Í dag hefur hún hins vegar lækkað um 1,8% það sem af er degi og segir Reuters fréttastofan að lækkunina megi rekja til þess að fjárfestar hafi enn talsverðar áhyggjur af fjármálamörkuðum, ekki bara í Evrópu heldur á alþjóðavísu. Sést það best á því að bankar eru að lækka nokkuð í dag en Barclasy bankinn og UBS bankinn leiða þær lækkanir og hafa lækkað um 2,2% og 3%.

Í Lundúnum hefur FTSE 100 vísitalan lækkað um 1,5%, í Amsterdam hefur AEX vísitalan lækkað um 1,6% og í Frankfurt hefur DAX vísitalan lækkað um 1%.

Í París hefur CAC 40 vísitalan lækkað um 1,7% og í Sviss hefur SMI vísitalan lækkað um 1,7%.

Í Kaupmannahöfn hefur OMXC vísitalan lækkað um 0,8%, í Osló hefur OBX vísitalan lækkað um 1% og í Stokkhólmi hefur OMXS vísitalan lækkað um 1,3%.