Evrópskir viðskipta- og fjárfestingabankar munu fækka starfsmönnum um 12.500 á þessu ári. Þetta kemur fram í nýrri greiningu bandaríska fjárfestingabankans JP Morgan.

Bankinn spáir því að samhliða „lítilli bankakreppu“ verði starfsmönnum í evrópskum bönkum fækkað í svipaðan fjölda og á árunum 2005 og 2006.

Dow Jones fréttaveitan greinir frá þessu.