Eygló Harðardóttir alþingismaður bar sigurorð af Willumi Þór Þórssyni, framhalds- og háskólakennara, við val á framboðslista Framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi. Eygló var kjörin í fyrsta sæti en Willum í annað sætið.

Framsóknarmenn í Suðvesturkjördæmi völdu sér lista á tvöföldu kjördæmisþingi sem lauk um miðjan dag í dag.

Efstu fimm sæti listans raðast þannig:

  1. Eygló Harðardóttir, alþingismaður
  2. Willum Þór Þórsson, framhalds- og háskólakennari
  3. Þorsteinn Sæmundsson, rekstrarhagfræðingur
  4. Sigurjón N. Kjærnested, vélaverkfræðingur
  5. Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, náms- og starfsráðgjafi