Eyrir Invest hefur keypt í Össuri fyrir 114 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Um er að ræða milljón hluti keypta á genginu 114.

Að undanförnu hefur fjárfestingarfélagið, sem er stærsti eigandi Össurar, verið bæta við sig hlutum í félaginu.

Þann 13. desember keypti það fyrir 138 milljónir króna í Össuri, 24. nóvember keypti það fyrir 48 milljónir króna og þann 15. sama mánaðar keypti það fyrir 201 milljón króna.