Icelandair flutti rúmlega 146 þúsund farþega í september sl., sem er 22% fjölgun á milli ára. Þá hefur farþegum Icelandair fjölgað um 12% á milli ára fyrstu átta mánuði ársins.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group sem sendar eru Kauphöllinni en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair nemur rúmlega 1,1 milljón það sem af er ári, samanborið við rúma milljón farþega á sama tíma í fyrra.

Fjölgunin fyrstu níu mánuði ársins telst athyglisvert í ljósi þess að í apríl sl. fækkaði farþegum um 17% á milli ára. Þá mátti helst rekja samdráttinn til eldsumbrotanna í Eyjafjallajökli en sem kunnugt er þurfti félagið að aðlaga leiðarkerfi sitt talsvert vegna þess.

Þá er ársaukningin í september mesta aukning í einum mánuði á þessu ári auk þess sem félagið hefur aldrei flutt jafn marga farþega í september.

Fækkun eða samdráttur hjá flestum öðrum félögum innan samstæðunnar

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, heldur áfram að fækka. Í september sl. flutti félagið um 27.500 þúsund farþega sem er 6% fækkun farþega á milli ára. Þá hefur farþegum Flugfélags Íslands fækkað um 8% á milli ára fyrstu níu mánuði ársins. Í lok september hafði félagið flutt rúmlega 260 þúsund farþega, samanborið við rúmlega 285 þúsund farþega á sama tíma í fyrra.

Fraktflug á vegum samstæðunnar heldur einnig áfram að dragast saman. Í september dróst fraktflug saman um 11% á milli ára en þannig nemur samdrátturinn í fraktflugi um 3% það sem af er ári.

Þá hefur nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar dregist örlítið saman á milli ára. Í september sl. voru um 11.400 þúsund gistinætur seldar, samanborið við rúmlega 12 þúsund gistinætur árið áður, sem þýðir 6% fækkun á milli ára. Framboð hótelherbergja stendur þó nánast í stað á milli ára. Sala hótelherbergja í eigu samstæðunnar hefur þannig lækkað um 2% á milli ára það sem af er ári.

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group dróst lítillega saman í september á milli ára eða 4%. Þannig nam nýting á flugflotanum tæpum 94% samanborið við tæpl. 98% í september í fyrra. Hér er átt við allar vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteiða Icelandic. Nýting flugflotans hefur þó aukist um 1,4% á milli ára fyrstu níu mánuði ársins.