Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,63% í viðskiptum dagsins og stendur hún nú í 1816,03 stigum eftir rúmlega 1,4 milljarða viðskipti.

Gengi bréfa Eikar fasteignafélags hækkaði um 2,8% í 82 milljóna króna viðskiptum og Regins um 2,28 % í 178 milljóna viðskiptum.

Gengi bréfa Icelandair Group lækkaði um 1,62% í 173 milljóna króna viðskiptum og Skeljungs um 0,9% í 66 milljóna viðskiptum.

Mest velta var í viðskiptum með bréf Reita fasteignafélags sem hækkuðu um 2,29% í 371 milljóna króna viðskiptum.

Vísitölur Gamma

Skuldabréfavísitala Gamma hækkaði um 0,1% í 3,1 milljarðs viðskiptum. Þar hækkaði verðtryggði hluti vísitölunnar um 0,03% í litlum viðskiptum og sá óverðtryggði um 0,22% í rúmlega 3,1 milljarðs viðskiptum.