Mikil veltuaukning var á fasteignamarkaði í síðustu viku en veltan hefur engu að síður dregist saman um 75% milli ára Töluverð breyting var á veltu á fasteignamarkaði milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni rúmur 1,7 milljarðar króna en var í síðustu viku 984 milljónir króna. Veltan eykst því um 78% milli vikna en rétt er að hafa í huga að veltan hafði dregist verulega saman síðustu fjórar vikur.

Meðalvelta á viku frá áramótum er rúmir 2,3 milljarðar.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 55 í vikunni sem leið en 31 samningi var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali hefur 69 samningum verið þinglýst á viku frá áramótum.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 31,9 milljónir króna og breytist nánast ekkert milli vikna. Meðalvelta á hvern samning frá áramótum eru 32,2 milljónir.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 75% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.