Verksmiðjan Norðurpóllinn ehf. hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Félagið er skráð fyrir vefmiðlinum bleikt.is samkvæmt skráningu á heimasíðu fjölmiðlanefndar. Þar kemur einnig fram að félagið sé í eigu Vefpressunnar þar sem Björn Ingi Hrafnsson er á meðal stærstu eigenda.

Samkvæmt síðasta birta ársreikningi Verksmiðjunnar Norðurpólsins ehf. fyrir árið 2011 var félagið rekið með 20 milljóna króna tapi árið 2011 og 11 milljóna tapi árið 2010. Eigið fé félagsins var neikvætt um rúmar 30 milljónir króna í lok árs 2011. Þá var eignarhlutur Vefpressunnar í félaginu metinn á 20 milljónir króna samkvæmt ársreikningi ársins 2011. Ekki hefur verið birtur ársreikningur Vefpressunnar fyrir árið 2012.