Kjarasamningur VR og Samtaka atvinnulífsins var samþykktur með miklum meirihluta atkvæða en atkvæðagreiðslu lauk á hádegi í dag.

Á kjörskrá voru 19.955 og greiddu 12,73% atkvæði eða 2.541. Alls samþykktu 72,3% samninginn en 25,3% höfnuðu honum. 2,4% tóku ekki afstöðu. Kjarasamningurinn var undirritaður þann 17. febrúar sl. og er gildistími hans frá 1. febrúar 2008 til 30. nóvember 2010.

Þetta kemur fram á heimasíðu VR.