Alls fóru tæplega 23.700 erlendir gestir frá landinu í nóvember um Leifsstöð, sem er lítilsháttar aukning frá því í nóvember á síðasta ári, þegar 23.100 erlendir gestir fóru frá landinu.

Aukningin nemur 2,6% milli ára.

Þetta kemur fram á vef Ferðamálastofu en þar er byggt á talningum á vegum Ferðamálastofu þar sem sjá má skiptingu eftir þjóðerni.

Þá kemur fram að ferðum Íslendinga utan fækkar hins vegar umtalsvert. Þannig fóru 16.300 utan í nóvember síðastliðnum en í sama mánuði á síðasta ári fóru tæp 42 þúsund Íslendinga utan, sem gerir 60% fækkun.

Aukning er meðal gesta frá Mið Evrópu, einkum Þjóðverja, Hollendinga og Frakka. Af Norðurlandaþjóðum er aukning meðal Dana og Norðmanna. N.-Ameríkubúum, Bretum og S.-Evrópubúum fækkar hins vegar.

Sjá nánar vef Ferðamálastofu.