FÍB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, hefur sent Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra áskorun um að grípa til aðgerða til að stöðva háar arðgreiðslur tryggingafélaganna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FÍB.

VÍS, Sjóvá og TM hafa kynnt fyrirætlanir um samtals 8,5 milljarða króna arðgreiðslur á árinu. FÍB gagnrýnir þessar arðgreiðslur og segir að „fjármunina eigi að taka úr bótasjóðum sem tryggingafélögin hafa safnað með uppsprengdum iðgjöldum af ofáætluðum tjónum."

Í tilkynningunni segir að Fjármálaeftirlitið hafi lagt blessun sínar yfir arðgreiðslunar og hvetur fjármálaráðherra til að gefa stjórn FME fyrirmæli um að sinna sinna lögbundnu eftirlits- og aðhaldshlutverki sínu. FÍB segir að FME vanræki skyldur sínar við almenning og hugsi eingöngu um hag fjármálafyrirtækja og fjárfesta.

FÍB bendir á að FME hafi ríkar heimildir til að hlutast til um fjármál og rekstur tryggingafélaganna. FME geti skipað þeim að endurgreiða tryggingatökum eign þeirra í bótasjóðunum eða nota fjármunina til að lækka iðgjöld næstu árin.