Alþjóðlegu bankasamsteypurnar Groupe BPCE, Grupe Crédito Agrícola og UniCredit ásamt núverandi fjárfestum Frumtak Ventures, Velocity Capital og Industrifonden hafa fjárfest í íslenska fjártæknifyrirtækinu Meniga fyrir um 1,3 milljarða íslenskra króna, samkvæmt fréttatilkynningu fyrirtækisins.

Meniga, sem er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í stafrænni bankaþjónustu, mun notfæra fjárfestinguna til þess að styðja við áframhaldandi vöxt fyrirtækisins í rannsóknum og þróun á hugbúnaði ásamt því að styðja við sölu og þjónustu fyrirtækisins til að mæta aukinni eftirspurn. Bankarnir þrír eru jafnframt meðal viðskiptavina Meniga.

„Við erum gríðarlega ánægð með að bjóða Groupe BPCE og Crédito Agrícola velkomna í hluthafahóp Meniga,” er haft eftir Georgi Lúðvíkssyni, forstjóra og einn af stofnendum Meniga, í fréttatilkynningunni.

„Það er stefna okkar að vinna náið með viðskiptavinum okkar í þróun á starfrænni bankaþjónustu og að fá þessa banka inn sem fjárfesta er kjörin leið til að styrkja slíkt samstarf. Við þökkum það traust sem við höfum fengið til að byggja með þeim bankaþjónustu framtíðarinnar.”

Bankarnir þrír eru stórar bankastofnanir á alþjóðavísu. Groupe BPCE, næst stærsta bankasamsteypa í Frakklandi, er með um 36 milljón viðskiptavini, Grupo Crédito Agrícola, einn stærsti banki Portúgal, er með 1,5 milljón viðskiptavini og UniCredit starfar í 13 löndum íEvrópu og eru með starfsemi í 18 löndum til viðbótar víðs vegar um heiminn. Unicredit hafði áður fjárfest í Meniga árið 2018.

“Samstarf okkar við Meniga hefur verið á jákvæðum nótum frá byrjun. Saman höfum við lagt grunninn að áframhaldandi stafrænni þróun Groupe BPCE sem mun gera okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar enn betri þjónustu á tímum mikilla tækniframfara í bankaþjónustu,“ er haft eftir Yves Tyrode, framkvæmdarstjóra upplýsinga og stafrænnar þróunar og meðlimur framkvæmdarstjórnar Groupe BPCE.

„Við hlökkum til að umbreyta notendaupplifun bankans og leggja okkar að mörkum í framtíð stafrænnar þróunar með Meniga.”