Á fundi Glitnis nú í morgun þar sem ný afkomuspá var kynnt talaði Karl Wernerson um þróun og sögu Milestone sem er stærsti hluthafi Glitnis með 22% virkan eignarhlut. Karl Wernerson er einnig varamaður stjórnar Glitnis.

Karl talaði um að eðlilegt væri að sveiflur á borð við þær sem hafa verið á markaðinum hræði burt þá fjárfesta sem ekki eru komnir til að vera til lengri tíma. Karl sagði að Milestone myndi halda áfram að vera langtímafjárfestir sem einbeitir sér að því að eiga virka eignarhluti og fjárfesta til áhrifa.