Ekki er gert ráð fyrir mikilli lækkun á ráðstöfunarfé ráðherra í fjárlögum fyrir árið 2011 sem lögð voru fyrir Alþingi á föstudag.
Þannig er aðeins gert ráð fyrir 6% sparnaði á ráðstöfunarfé ráðherra eða 2,7 milljónum króna.
Gert er ráð fyrir að ráðstöfunarfé ráðherra verði á næsta ári 44,6 milljónir króna í heildina, samanborið við 47,3 milljónir króna í ár. Í sjö ráðuneytum er ráðstöfunarfé óbreytt á milli ára.
Hjá flestum ráðherrum er upphæðin óbreytt á milli ára eins og sést í töflunni hér að neðan. Í krónum talið er mesta lækkunin hjá forsætisráðherra en ráðstöfunartekjur forsætisráðherra minnkar um 1 milljón króna, úr 3,5 milljónum í 2,5 milljónir.
Í prósentum talið kemur mesta lækkunin til hjá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra en ráðstöfunarfé hans lækkar úr 3,5 milljónum króna í 3 milljónir eða um 14%.
Ráðstöfunarfé ráðherra ( í m.kr.) Fjárlög 2010 Frumvarp 2011 Breyting í % Breyting í kr.
Félags- og tryggingamálaráðuneyti 3,5 3,5 0% 0,0
Heilbrigðisráðuneyti 3,6 3,6 0% 0,0
Fjármálaráðuneyti 3,5 3,1 -11% -0,4
Mennta- og menningarmálaráðuneyti 6,7 6,1 -9% -0,6
Samgöngu- og sveitastjórnarráðuneyti 3,1 3,1 0% 0,0
Dómsmálaráðuneyti 5,6 5,6 0% 0,0
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti 3,5 3,0 -14% -0,5
Utanríkisráðuneyti 3,5 3,5 0% 0,0
Umhverfisráðuneyti 3,1 2,9 -6% -0,2
Iðnaðarráðuneyti 5,6 5,6 0% 0,0
Efnahags- og viðskiptaráðuneyti 2,1 2,1 0% 0,0
Forsætisráðuneyti 3,5 2,5 -29% -1,0
Samtals: 47,3 44,6 -6% -2,7