Tekjur Sláturfélags Suðurlands á fyrri árshelmingi 2.545,1 milljónum króna. Hagnaður á fyrri árshelmingi nam 121,6 milljónum króna en 47,1 milljóna króna tap árið áður. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að afkoma batnar milli ára, einkum vegna lækkunar fjármagnsgjalda. EBITDA afkoma var 211 milljónir króna sem er hækkun um 22 milljónum króna frá fyrra ári.

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2007 var 121,6 milljónir króna. Á sama tímabili árið áður var 47,1 milljóna króna tap. Eigið fé Sláturfélagsins er tæpar 1.667 milljóna króna og eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 42%.

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 2.545 milljónir króna á fyrri árshelmingi ársins 2007, en 2.259 milljónir króna á sama tíma árið áður og hækka því um tæp 13%. Aðrar tekjur voru 21 milljónir króna en 17 milljónir króna árið áður.

Veltufé frá rekstri var 145 milljónir króna á fyrri árshelmingi ársins 2007, samanborið  við 206 milljónir króna. fyrir sama tímabil árið 2006.

Heildareignir Sláturfélagsins 30. júní voru 3.957 mkr. og eiginfjárhlutfall 42%. Veltufjárhlutfall var 2,6 á fyrri hluta ársins 2007, en 1,6 árið áður.

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2007 var í aprílmánuði greiddur 7,0% arður af B-deild stofnsjóðs alls 13 milljónir króna og reiknaðir 7,0% vextir á A-deild stofnsjóðs alls 16 milljónir króna.

Sláturfélagið birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti í samræmi við heimildir í reglum félaga á Tilboðsmarkaði Kauphallar Íslands. Ráðgert er að birta afkomu ársins 2007 þann 22. febrúar 2008.

Í tilkynningu félagsins segir að gera megi ráð fyrir að innflutningur á landbúnaðarvörum aukist á næstu árum
samfara lækkun tolla. Sláturfélagið eins og önnur afurðafyrirtæki þurfa að ná fram frekari hagræðingu í rekstri til að geta mætt þessum breytingum. Á undanförnum árum hafa verið gerðar breytingar á rekstri félagsins til að takast
á við aukna erlenda samkeppni.

Stór hluti af matarneyslu landsmanna fer nú fram utan heimilis, á veitingahúsum og í mötuneytum vinnustaða og skóla. Breyttu neyslumunstri hefur verið fylgt eftir með aukinni áherslu á sölu í mötuneyti og veitingahús. Þetta hefur jafnframt kallað á breytt innkaup heimila sem mætt hefur verið með vöruþróun.

Matvöruhluti innflutningsdeildar hefur aukið hlutdeild sína á markaði enda mörg vörumerki deildarinnar vel þekkt á heimsvísu. Sala á tilbúnum áburði til bænda í samstarfi við Yara í Noregi hefur aukist umtalsvert enda vörugæðin þekkt meðal bænda. Innflutningur á kjarnfóðri er að hefjast í samstarfi við DLG í Danmörku en fóðurverð hér á landi hefur verið mun hærra en í nágrannalöndum okkur. Með innkomu SS á fóðurmarkað aukast valkostir bænda auk þess sem mikilvægt er að bændur hér á landi eigi aðgang að úrvalsfóðri á hagstæðu verði til að þeir séu betur í stakk búnir til að lækka framleiðslukostnað.


Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. sem Sláturfélagið á 51% hlut í.