Fjármálaeftirlitið heufr sent Straumi Fjárfestingarbanka hf. bréf þar sem fallist er á kaup Straums á 33% hlut í Tryggingamiðstöðinni.

Þann 28. maí 2004 keypti Straumur Fjárfestingarbanki hf. 33,03% eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni hf. af Kaldbaki hf., með fyrirvara um samþykki Fjármálaeftirlitsins, sbr. tilkynning Straums Fjárfestingarbanka hf. til Kauphallar Íslands dags. 1. júní 2004. Með bréfi dags. 6. júlí 2004 var umsókn Straums Fjárfestingarbanka hf. um kaup á þessum hlutum í Tryggingamiðstöðinni hf. samþykkt, að því er fram kemur í tilkynningu frá Straumi til Kauphallarinnar.