Það var mikið um dýrðir þegar FKA stóð fyrir árlegri „Kick-Off" samkomu sinni í Nýherja húsinu.
Ljósmynd: Aðsend mynd
Deila
Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) stóð fyrir sinni árlegu „Kick-Off“ samkomu, til að skerpa sýn félagskvenna fyrir komandi ár.
Rúna Magnúsdóttir, stjórnarkona í FKA og stjórnendamarkþjálfi, hélt tölu um mikilvægi framtíðarsýnar og deildi nokkrum leyndarmálum markþjálfunar sem eru notuð til ná sem bestum árangri á framabrautinni.
Þá kynnti Finnur Oddsson stuttlega vegferð Nýherja og sýndi nýjasta nýtt í tölvutækni.
FKA hefur að auki boðað til verðlaunaafhendingar þann 29. janúar næstkomandi klukkan 16:30 í Hörpu, þar sem Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra mun afhenda verðlaunin.
Myndir af samkomu FKA sýna svo ekki verður um villst að gestir skemmtu sér vel: