FL Group hefur bætt við sig 0,53% hlut í easyJet, til viðbótar þeim 10,97% hlut sem félagið átti fyrir. Heildarhlutur FL Group í easyJet eftir kaupin er því 11,5%.

Gengi bréfa FL Group héldust óbreytt frá því á föstudag, og var lokagengi bréfanna 15,1 kr. á hlut segir í Vegvísi Landsbankans.