Flaga Group hf. birtir níu mánaða uppgjör í dag,  16. nóvember 2006.

Á fystu sex mánuðum ársins nam tap félagsins 1,2 milljónum dollara. Í tilkynningu frá félaginu sem fylgdi sex mánaða uppgjöri sagði meðal annars: "Fyrirtækið hefur gengið í gegnum umtalsverðar skipulagsbreytingar og er þeim nú nær lokið á farsælan hátt. Fyrirtækið er nú betur í stakk búið en nokkru sinni fyrr að nýta tækifæri á hratt vaxandi og arðsömum markaði á komandi árum. Yfirstjórn Flögu Group hf. er bjartsýn sem fyrr að markmiðum um skilvirkni og stöðugan markaðsvöxt sem var driffjöður skipulagsbreytinga verði náð og að fyrtækið sé á réttri braut til að ná langtíma rekstrarárangri."