Flosi Eiríksson hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri á sviði ráðgjafar og fræðslu hjá Íslandsstofu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Hann mun starfa með íslenskum fyrirtækjum að margvíslegum verkefnum við erlenda markaðsókn.

Undanfarin 10 ár hefur Flosi starfað hjá KPMG, síðast sem verkefnastjóri í viðskiptaþróun og tengslum. Flosi er viðskiptafræðingur að mennt og er einnig með sveinsbréf í húsasmíði. Íslandsstofa sinnir mikilvægu hlutverki við að styðja íslensk fyrirtæki við erlenda markaðssókn og markaðs- og kynningarstarfi fyrir útflutningsgreinar. „Reynsla Flosa og þekking mun nýtast viðskiptavinum og samstarfsaðilum Íslandsstofu vel og styrkja enn frekar starfsemina,“ segir í tilkynningunni.