Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og Dagur Group hafa gert með sér samning um rekstur verslunar með tónlist, kvikmyndir, tölvuleiki sem og afþreyingarefni því tengt, en hingað til hafa þessir vöruflokkar verið seldir í Fríhöfninni ehf. Þetta kemur fram í frétt frá fyrirtækjunum.

Verslunin mun einnig selja aðgöngumiða á tónleika og aðra afþreyingarviðburði á Íslandi og erlendis.
Samningurinn er einn þáttur í að bæta þjónustu við flugfarþega meðal annars með auknu framboði á vörum og vörumerkjum, auk þess að auka hlut einkaaðila í verslun í flugstöðinni en sú stefna var mótuð þegar ráðist var í forval um val á verslunaraðilum.

Gert er ráð fyrir að verslunin, sem verður um 100 fermetrar, muni opna um leið og annar hluti af nýju brottfararasvæði flugstöðvarinnar verður tilbúin vorið 2007.