Guðmundur Stefánsson, framkvæmdastjóri Pickenpack Gelmer, dótturfélags Icelandic Group, hefur sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri að því er kemur fram í tilkynningu. Guðmundur Stefánsson var ráðinn framkvæmdastjóri Pickenpack Gelmer SAS á árinu 2006 og var áður framkvæmdastjóri frystisviðs Delpierre.

Stjórn félagsins hefur samþykkt uppsögn hans. Í tilkynningu kemur fram að Guðmundur mun aðstoða nýjan framkvæmdastjóra á næstu mánuðum. Ákveðið hefur verið að Torsten Krüger muni taki við starfi framkvæmdastjóra Pickenpack Gelmer SAS. Torsten Krüger var fjármálastjóri Pickenpack -Hussmann & Hahn frá árinu 2001.