Félagsbústaðir hafa ráðið Þóru Þorgeirsdóttur til starfa en frá árinu 2018 hefur hún starfað hjá Maskínu rannsóknum, sem viðskiptastjóri í vinnustaðagreiningum og mannauðsráðgjöf.

Þóra mun gegna stöðu sviðsstjóra þjónustu- og samskiptasviðs hjá Félagsbústöðum. Auk þess hafa starfað hjá Maskínu undanfarin tvö ár hefur Þóra sinnt kennslu við Háskólann á Bifröst, fyrst stundakennslu en á síðasta ári varði hún lektor við skólann.

Þóra útskrifaðist með doktorsgráðu í stjórnun árið 2017 frá School of Management við Háskólann í Cranfield í Bretlandi.  Þóra lauk mastersgráðu í stefnumiðaðri stjórnun við Háskóla Íslands (HÍ) árið 2012 og B.A gráðu í frönsku með viðskiptafræði sem aukagrein við HÍ árið 2002.