Höskuldur Ari Hauksson, framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Straumi, hefur keypt fyrir 59,9 milljónir króna í fjárfestingabankanum. Er hann að nýta sér sér kauprétt, að því er fram kemur í tilkynningu.

Um er að ræða þrjár milljónir hluta, keypta á genginu 19,85. Gengi á markaði er nú 19,9, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis.